← Ragnar

Ragnar: persónuvernd

Atriði
ÞjónustaRagnar (ai.kunnatta.is): gervigreindarspjall fyrir nemendur
VinnsluaðiliKunnátta ehf., kt. 590624-0120
Síðast uppfært7. nóvember 2026

Þessi lýsing segir hvaða persónuupplýsingar eru unnar í Ragnari og er hluti af almennum vinnsluskilmálum Kunnáttu, sem binda Kunnáttu gagnvart skólum með áskrift.

Ragnar er spjallmenni fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskólum. Hann svarar spurningum (hamurinn Ragnar) eða leiðir nemanda áfram án þess að gefa svarið (Námsaðstoð).

1. Hver ber ábyrgð?

Skólinn er ábyrgðaraðili og Kunnátta ehf. vinnsluaðili. Skóli fær aðgang með áskrift.

2. Aðgangur

Nemendur skrá sig ekki inn og eiga engan aðgang í Ragnari. Skólinn fær aðgang á einn af tveimur vegu:

3. Hvað er geymt og hvað ekki?

Samtöl eru ekki geymd. Það sem nemandi skrifar, myndir sem hann sendir og svör Ragnars eru aðeins geymd meðan samtalið stendur yfir, svo að Ragnar muni hvað var sagt. Samtalinu er eytt þegar síðan er endurhlaðin, þegar smellt er á „Hreinsa spjall“ eða eftir 30 mínútna óvirkni.

UpplýsingarTil hversGeymslutími
Fyrir hvert samtal: tími, fjöldi skilaboða og aðgangskóði skólans. Engin IP-tala, ekkert efni, og ekkert sem tengist einstökum nemandaNotkun eftir skólumVarðveitt til tölfræði; ekki persónuupplýsingar
Notkunartölur: líkan, fjöldi tóka, kostnaður, svartímiReikningar og reksturVarðveitt til tölfræði; ekki persónuupplýsingar
Aðgangsskrá: IP-tala (net skólans), aðgangskóði og tímiAðgangsstýring og öryggiEndurnýjast eftir stærð; síðustu 5–10 MB

Ragnar minnir nemendur á að gefa ekki upp kennitölu, heimilisfang eða aðrar persónuupplýsingar.

4. Gervigreind

5. Vafrakökur

6. Réttindi og tengiliðir

Beiðnir um réttindi fara til skólans. Þar sem samtöl eru ekki geymd er ekkert efni til að afhenda eða eyða eftir að samtali lýkur. Tengiliðir Kunnáttu og persónuverndarfulltrúa hennar eru í 14. kafla vinnsluskilmálanna.